Hér eru algengustu vandamál sem koma upp varðandi netið heim í gegnum HÍ.
Netið datt út skyndilega. Athuga eftirfarandi:
- Viðkomandi gæti verið kominn á lista yfir mikla umferð. Getur t.d. farið á www.hi.is síðuna en ekki út fyrir hana. - Setja þarf inn Proxy stillingar. Sjá nánar hér: Proxy stillingar
- Slökkva og kveika á beini (router). Hafið slökkt á beininum í allavega 30 sekúndur.
- Beinir (router) er tryggilega tengdur, símakapall/netkapall er heill og óskaddaður, prófa annan kapal.
- DSL línan sé virk frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki. DSL eða Line Sync ljós á að vera grænt. Viðkomandi fjarskiptafyrirtæki gefur upplýsingar um það.
- Ef skipt hefur verið um fjarskiptafyrirtæki þá þarf að sækja "Netið heim" í Uglunni á nýjan leik.
- Prófa annan net/símatengil fyrir router ef það er í boði.
- Í sumum tilfellum þarf að setja beininn upp aftur (Reset Factory Default Settings).
- Notandi er kominn á lista yfir vírussýktar vélar á Háskólanetinu. Hafið samband við Tölvuþjónustu UTS.
Hef aldrei náð internetsambandi. Athuga eftirfarandi:
- DSL línan sé orðin virk frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki. DSL eða Line Sync ljós á að vera grænt. Gott er að hringja í fjarskiptafyrirtæki og spyrja hvort línan sé tengd.
- Notendanöfn RHnets verða virk u.þ.b. 3-6 klst eftir umsókn hefur verið móttekin.
- Notast þarf við stillingar frá viðkomandi fjarskiptafyrirtæki en einungis setja inn notandanafn og lykilorð frá UTS.
- Mikilvægt að setja inn þitt eigið notandanafn hér: notandanafn@nemendur.hi.is eða notandanafn@starfsm.hi.is
- Stundum þarf að endurræsa (Factory Default Settings) beina (router) og stilla þá upp á nýtt. Hafa réttar stillingar frá viðkomandi símafyrirtæki til hliðsjónar.
- Sækja aftur um "Netið heim" í Uglunni og setja síðan nýja notandanafnið og lykilorðið inn í stillingar beinisins. Þetta á við í örfáum tilfellum þegar allt annað hefur verið sannreynt.
Tenging er að sífellt að detta út eða missa samband, þá þarf að ganga úr skugga um eftirfarandi atriði:
- Smásíubúnaður rétt upp settur á öllum símtækjum sem eru á DSL línunni.
- Prófa að aftengja önnur símtæki og leyfa router að vera einum í sambandi. Öll símtæki þurfa að vera með smásíu ef þau eru á sömu línu og router.
- Símasnúra frá beini (router) sé ekki með smásíu. Smásíur eiga aðeins að tengjast við síma og beinir á að fá hreint samband við inntakið.
- Símakapall / netkapall frá beini sé heill og dósin í veggnum ósködduð og í lagi. Gott að prófa annan kapal.
- Takmarka notkun T-stykkja (splitter) sem deila línunni niður til að einangra bilun í þeim.
- RJ-11 tengi stuðla að stöðugra sambandi heldur en eldri símaklær. Gamaldags símaklær og ADSL- / VDSL-samband fara ekki alltaf vel saman, þar sem klærnar liggja ekki jafn þétt að vírum í símadós og glæru kubbalöguðu tengin RJ-11 gera. Slíkt getur valdið titringi/sveiflu á símalínunni og þannig slitið samband milli beinis og símstöðvar.
- Fjarskiptafyrirtækin geta mælt línuna í heimahúsum.